Lögð fram fyrirspurn Helga Mars Hallgrímssonar dags. 26. ágúst 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Gufuness vegna lóðar nr. 5 og 7 við Jöfursbás sem felst í stækkun lóða. Nýtingarhlutfall helst óbreytt en byggingarmagn eykst í hlutfalli við stækkun lóðanna. Einnig er lögð fram tillaga Arkþings - Nordic ehf. ódags.