Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 12. október 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 25 íbúða fjölbýlishúsi á 3-5 hæðum auk kjallara, mhl.03, burðarvirki staðsteypt en stigahlaup og svalir úr forsteyptum einingum á lóð nr. 5 við Jöfursbás. Stærð er: 2.311,5 ferm., 7.574,2 rúmm. Erindi fylgir greinargerð brunahönnuðar dags. 25. ágúst 2021, greinargerð um hljóðvist dags. 7. september 2021 og afrit af uppdrætti deiliskipulags sem birtur var í B-deild þann 16. mars 2021. Gjald kr.12.100