Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. mars 2021 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 1. mars 2021 um framkvæmdaleyfi vegna upphækkaðra ljósastýrðra gatnamóta Borgartúns og Snorrabrautar, gerð tengingar Bríetartúns við Snorrabraut og tengingu Bríetartúns að Borgartúni ásamt breytingum á tengingu Hverfisgötu 113 við Snorrabraut og gerð göngu- og hjólastíga. Einnig eru lagðar fram útboðsteikningar umhverfis- og skipulagssviðs dags. í janúar 2021 og útboðs- og verklýsing umhverfis- og skipulagssviðs dags. í febrúar 2021. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. mars 2021.