Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. september 2020 var lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar dags. 17. september 2020 vegna umsóknar um hænsnahald á lóð nr. 5 við Starhaga, en óskað er eftir umsögn um hvort heimilt er að vera með hænsnakofa upp við lóðarmörk og að gerði fari út fyrir lóð, samkvæmt skissu á afstöðumynd ódags. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2020. Jafnframt er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. október 2020.