Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. september 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að færa og stækka kvisti og setja svalalokanir á svalir í risi til suðurs, bæta við þakgluggum á norðurþekju, setja nýtt þak og skyggni yfir anddyri og kjallaratröppur, síkka glugga úr borðstofu og gera þar þrefalda hurð út á nýjan sólpall og tröppur af honum niður í garð auk smávægilegra breytinga á innra skipulagi í risi í sambýlishúsi á lóð nr. 15 við Akurgerði. Stækkun x.xx ferm., x.xx rúmm. Gjald kr. 11.200