Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Karls Kvarans dags. 29. nóvember 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar nr. 24 við Barðavog. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit lóðarinnar, stækkun hússins og aukning á nýtingarhlutfalli, samkvæmt uppdr. SP(R)INT STUDIO ehf. dags. 28. nóvember 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. janúar 2022 til og með 3. febrúar 2022. Engar athugasemdir bárust.