nýtt deiliskipulag
Lækjargata 1
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 797
12. nóvember, 2020
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. október 2020 var lögð fram umsókn Framkvæmdasýslu ríkisins dags. 14. október 2020 ásamt bréfi dags. 14. október 2020 um nýtt deiliskipulag fyrir lóðina nr. 1 við Lækjargötu, lóð forsætisráðuneytisins og stjórnarráðshússins, vegna áforma um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið fyrir starfsemi forsætisráðuneytisins. Einnig er lögð fram vinningstillaga Kurt og Pí arkitekta frá árinu 2018 og umboð forsætisráðuneytisins dags. 14. október 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Komi til kynningar er vakin er athygli á að umsækjandi þarf að greiða áður en kynning fer fram, skv. lið 7.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.