Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Úlfarsárdals vegna lóðarinnar nr. 5-11 við Rökkvatjörn. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir fjórar raðhúsaeiningar sem í gildandi deiliskipulagi er 34,60 m x 10 m er breytt þannig að hann verður 34,60 m x 11,60 m, samkvæmt uppdr. VA arkitekta ehf. dags. 22. október 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 8. desember 2020 til og með 8. janúar 2021. Engar athugasemdir bárust.