Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt fimm hæða fjölbýlishús, einangrað að utan, klætt málm- og trefjasementsplötum, með 16 íbúðum og verslunarrýmum á götuhæð, sem verða Skyggnisbraut 13 og 15 á sameiginlegum bílakjallara á lóð nr. 1 við Rökkvatjörn. Stærð, A-rými: 2.248,2 ferm., 7.551,1 rúmm. B-rými: 94,5 ferm., 264,6 rúmm. Samtals: 2.342,7 ferm., 7.815,7 rúmm. Gjald kr. 12.100