Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2020 var lögð fram fyrirspurn Guðmundar Arnars Guðmundssonar dags. 1. desember 2020 um að breyta notkun bílskúrs nr. 33A á lóð nr. 33-33A við Viðarás í skrifstofu og vinnu stúdíó og setja hurð og glugga í stað bílskúrshurðar, samkvæmt uppdr. Huldu Jónsdóttur arkitekta dags. 23. nóvember 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. janúar 2021.