Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. desember 2020 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi kjallaraíbúðar, grafa frá suðurhlið og setja hurð og verönd auk þess er sótt um leyfi til að setja þakglugga í ris og fyrir áður gerðum breytingum á 1. og 2. hæð húss á lóð nr. 56 við Ægissíðu. Erindi fylgir afrit af teikningum samþ. 18. júlí 1955 og 28. október 1970 og mæliblað nr. 1.554.0 ódagsett, einnig samþykki eigenda íbúðar 0201 á afriti af teikningum dags. 20. nóvember 2020 og staðfesting á eignarhaldi mótt. 3. desember 2020. Stækkun: 39,9 ferm., 121,6 rúmm. Gjald kr. 11.200