Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn a2f arkitekta ehf. dags. 23. apríl 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðarinnar nr. 18 við Bergþórugötu. Í breytingunni felst að byggingarreitur er færður til vesturs ásamt því að bætt er við heimild í skilmála að útitröppur megi fara út fyrir byggingarreit, samkvæmt uppdr. a2f arkitekta ehf. dags. 15. apríl 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. maí 2021 til og með 23. júní 2021. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Jóhanna Margrét Jónsdóttir dags. 22. júní 2021 og Sigurjón Ernir Kárason og Sonja Guðlaugsdóttir dags. 23. júní 2021.