Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi rishæðar, bæta við þremur kvistum á norðurþekju og tveimur kvistum, einum þakglugga og svölum á suðurþekju íbúðarhúss á lóð nr. 56A við Framnesveg. Stækkun: x.xx ferm., x.xx rúmm. Erindi fylgir mæliblað 1.138.1 endurútgefið 1. nóvember 2011, hæðablað dags í október 2004 og yfirlit breytinga á minnkuðu afriti innlagðra teikninga. Gjald kr. 11.200