Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. febrúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Sverris Bollasonar dags. 15. janúar 2021 um skiptingu lóðarinnar nr. 5 við Kirkjuteig í tvær lóðir og byggja einbýlishús á hinni útskiptu lóð sem gæti fengið heimilisfangið Hrísateigur 2. Einnig er lagt fram bréf
VSÓ Ráðgjafar ehf.
dags. 13. janúar 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2021.