Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. júní 2021 var lögð fram fyrirspurn Kristjáns Ásgeirssonar dags. 2. júní 2021 ásamt bréfi dags. 2. júní 2021 um að setja bílgeymslu á austurhluta lóðarinnar nr. 81 við Bergstaðastræti, samkvæmt tillögu Alark arkitekta ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júlí 2021.