breyting á deiliskipulagi
Jöfursbás 9A, 9B, 9C og 9D
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 813
19. mars, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Júlíusar Þórs Júlíussonar dags. 25. janúar 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Gufuness, áfanga 1, vegna lóðarinnar nr. 9 við Jöfursbás. Í breytingunni felst að svalir megi ganga 160 cm út fyrir byggingarlínu á götuhlið, fallið verði frá kröfu um aukna salarhæð á jarðhæðum, svalagangar að götum mega vera 50% að heildarlengd byggingarreits, leyfilegt verði að fækka bílastæðum með samkomulagi um deilibíla, stærðarviðmiðum íbúa breytt, aðalinngangur verður úr sameiginlegum miðgarði, heimilt verði að hafa opin stigahús ef brunahönnun leyfir og fallið verður frá kröfu um inndregna efstu hæð, samkvæmt uppdr. Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 3. febrúar 2021.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.

112 Reykjavík
Landnúmer: 228388 → skrá.is
Hnitnúmer: 10131061