Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2021 var lagt fram bréf Landupplýsingadeildar dags. 13. apríl 2021 um stækkun lóðanna að Birkimel 6-6B, samkvæmt lóðauppdrætti umhverfis- og skipulagssviðs dags. 9. apríl 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. apríl 2021.