Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. júní 2021 var lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 3. maí 2021 ásamt bréfi dags. 1. maí 2021 um að koma fyrir smáhýsi á lóð nr. 8 við Blönduhlíð, samkvæmt uppdr. Mansard - teiknistofu ehf. dags. 28. apríl 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. júlí 2021.