Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. maí 2021 var lögð fram fyrirspurn VEV ehf. dags. 10. maí 2021 um breytingu á notkun rýma merkt 01 0201 og 01 0202 í húsinu á lóð nr. 5 við Skipholt úr atvinnuhúsnæði/skrifstofu í íbúðarhúsnæði, samkvæmt tillögu ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. maí 2021.