Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. maí 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvist ofan á anddyrisbyggingu og breyta gluggum í húsi á lóð nr. 16 við Ásveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. maí 2021.
Stækkun A rýmis er: 8,7 ferm., 19,2 rúmm. Stækkun B rýmis er: 3,2 ferm., 10,1 rúmm. Gjald kr. 12.100