Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. maí 2021 var lögð fram fyrirspurn Magnúsar Inga Aðalmundssonar dags. 12. maí 2021 um breytingu á deiliskipulagi Espigerðis vegna lóðarinnar nr. 4 við Furugerði sem felst í að byggingarreitur er stækkaður til suðurs og til austurs að hluta, heimilt verði að gera viðbyggingu á tveimur hæðum, byggingarmagn er aukið og heimilt verði að fjölga bílastæðum á lóð um tvö, samkvæmt uppdr. Magnúsar Inga Aðalmundssonar arkitekts ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. júní 2021.