Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. janúar 2022 var lögð fram fyrirspurn Jakobs Emils Líndals dags. 13. október 2022 ásamt bréfi dags. 13. janúar 2022 um að breyta einbýlishúsi á lóð nr. 4 við Furugerði í þrjár sjálfstæðar íbúðir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2022.