Lögð fram umsókn Ragnars Magnússonar dags. 4,. nóvember 2021 varðandi breytingu á deiliskipulagi Esjumela vegna lóðarinnar nr. 5 við Koparsléttu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit lóðarinnar um 4 m til suðausturs, samkvæmt uppdr. I62 ehf. ódags.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1472/2020.