Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. júní 2021 var lögð fram fyrirspurn Svövu Bjarkar Hjaltalín Jónsd. dags. 3. júní 2021 um að rífa niður núverandi bílskúr á lóð nr. 12 við Nökkvavog og byggja nýjan, samkvæmt tillögu Svövu Jóns, arkitektúr og ráðgjöf, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. júní 2021.