Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að síkka stofuglugga á suðurhlið, grafa frá og gera verönd fyrir kjallaraíbúð 0001 í íbúðarhúsi á lóð nr. 21 við Vífilsgötu. Erindi fylgir ódagsett samþykki eigenda húss nr. 23, mæliblað 1.243.1 útgefið í maí 1949 og yfirlit breytinga á A3 afriti af aðalteikningum samþykktum 3. júni 2008. Gjald kr. 12.100