Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. júní 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að síkka stofuglugga á suðurhlið, grafa frá og gera verönd fyrir kjallaraíbúð 0001 í íbúðarhúsi á lóð nr. 21 við Vífilsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2021. Erindi er lagt fram að nýju ásamt tölvupósti Péturs Bjarna Magnússonar og Ragnhildar Erlu Bjarnadóttur dags. 17. janúar 2022. Erindi fylgir ódagsett samþykki eigenda húss nr. 23, mæliblað 1.243.1 útgefið í maí 1949 og yfirlit breytinga á A3 afriti af aðalteikningum samþykktum 3. júni 2008. Gjald kr. 12.100