Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. júlí 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að setja svalir á austurgafl íbúðar 0201 og svalir með hringstiga niður í garð á vesturgafl íbúðar 0101 í íbúðarhúsi á lóð nr. 119 við Ægisíðu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2021.
Erindi fylgir hæðablað dagsett 30. janúar 1963 og samþykki lóðarhafa áritað á uppdrátt nr. A-101 dags. 14. júní 2021. Gjald kr. 12.100