Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. ágúst 2021 var lögð fram fyrirspurn Sigurðar Hallgrímssonar f.h. Íslenska fjallatrukkafélagsins ehf dags. 7. júlí 2021 um að minnka og færa byggingarreit lóðarinnar nr. 10 við Lambhagaveg og hækka húsið úr 8 metrum í 11 metra, samkvæmt uppdr. Arkþing-Nordic dags. 7. júlí 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. október 2021.