Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Malbikstöðvarinnar ehf. dags. 18. maí 2022 varðandi breytingu a deiliskipulagi Esjumela, athafnasvæðis, vegna lóðarinnar nr. 4-8 við Koparsléttu. Í breytingunni felst breyting á mörkum byggingarreits, annars vegar við innkeyrslu frá Koparsléttu og hins vegar á vestari hluta reits við Norðurgrafarveg ásamt því að hæð stoðveggja við lóðarmörk eru skilgreind með nýjum hætti í skilmálum, samkvæmt uppdr. Grímu arkitekta ehf. dags. 5. maí 2022. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. ágúst 2022 til og með 2. september 2022. Engar athugasemdir bárust.