Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. júlí 2021 var lögð fram fyrirspurn Arnar Arnarsonar, dags 7. júlí 2021, um leyfi til að opna inn í lokuð sökkulrými (óuppfyllt) á neðri hæð og nýta umrædd rými í húsi á lóð nr. 29 við Hverafold, samkvæmt meðf. uppdr. ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. september 2021.