framkvæmdaleyfi
Kjalarnes - náma við Blikadalsá
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 836
10. september, 2021
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. september 2021 var lögð fram umsókn Ístaks dags. 19. ágúst 2021 ásamt bréfi ódags. um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku í námu við Blikadalsá - E2. Megintilgangur fyrir efnistökunni er uppbygging á Vesturlandsvegi, sem er verkefni í umsjón Vegagerðarinnar og heitir "Hringvegur um Kjalarnes. Einnig er lögð fram úttekt úr Aðalskipulagi Reykjavíkur ódags. Einnig er lagður fram samningur milli landeigenda og Ístaks hf dags. 3. september 2021 um efnistöku, aðkomu og frágang lands. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2021.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. september 2021.
Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1472/2020.