Lögð fram umsókn Kristjáns Ásgeirssonar dags. 25. febrúar 2022 ásamt bréfi dags. 25. febrúar 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Esjumela vegna lóðarinnar nr. 8 við Járnsléttu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit lóðarinnar vegna áætlana um byggingu viðbótar stakstæðrar einnar hæðar byggingar á lóðinni, samkvæmt uppdr. ALARK arkitekta ehf. dags. 25. febrúar 2022.