Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. september 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta núverandi starfsemi á 1. hæð í Mathöll með alls 12 rekstrareiningar í flokki ll, tegund C, sem rúma samtals 161 sæti á 1. hæð og 28-50 í kjallara, endurbyggja skúr og bæta við glerbyggingu á baklóð húss nr. 3 sem verður hluti Mathallar í verslunar- og skrifstofuhúsi á lóð nr. 5 við Pósthússtræti. Afgreiðist samhliða erindi BN059551. Stærð´: óbreytt. Erindi fylgir yfirlit breytinga á A3 afriti af teikningum samþykktum 26. mars 2019. Gjald kr. 11.200