Endurgerð kvists - svalir o.fl.
Stýrimannastígur 11
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 870
31. maí, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til að endurgera kvist á götuhlið, gera nýjar svalir að garði, breyta gluggum á austurhlið og breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 11 við Stýrimannastíg. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. apríl 2022. Erindi var grenndarkynnt frá 19. apríl 2022 til og með 18. maí 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

Landnúmer: 100503 → skrá.is
Hnitnúmer: 10021916