Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. október 2021 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir lyftu í anddyri skólans, breyta innra skipulagi snyrtinga á 2. hæð og setja svalir á suðurhlið efri hæðar húss á lóð nr. 37 við Þingholtsstræti. Erindi var grenndarkynnt frá 29. nóvember 2021 til og með 28. desember 2021. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Hafsteinn Hafsteinsson dags. 26. nóvember 2021. Erindi fylgir bréf hönnuðar og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 15. júní 2021 og yfirlit breytinga unnið á afriti samþykktra uppdrátta. Gjald kr.12.100