Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 12. október 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja forstofu við norðurhlið og breytingar á innra skipulagi húss á lóð nr. 10 við Sörlaskjól. Erindi var grenndarkynnt frá 9. maí 2022 til og með 7. júní 2022. Engar athugasemdir bárust.