breyting á deiliskipulagi
Stefnisvogur 1 og 2 (reitir 1-2 og 1-6)
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 879
11. ágúst, 2022
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Hjalta Brynjólfssonar dags. 13. apríl 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogabyggðar svæðis 1 vegna lóðanna nr. 1 og 2 við Stefnisvog (reitir 1-2 og 1-6). Eftirfarandi breytingar eru gerðar á lóð 1-2: Byggingarmagn bílgeymslu neðanjarðar eykst (flyst til frá lóð 1-6) og lóð 1-2 leysir bílastæði innan eigin lóðar. Byggingarmagn B-rýmis eykst um 30 m2. Heildarbyggingarmagn lóðar eykst. Eftirfarandi breytingar eru gerðar á lóð 1-6: Fjórir húshlutar í stað þriggja ofan á bílageymslu og bundin byggingarlína íbúðarhús ofan á bílgeymslu breytist samhliða. Byggingarreitur og skörð með dvalarsvæðum milli húshluta breytast/færast til. Íbúðum er fjölgað úr 51 íbúð í 60 íbúðir. Byggingarmagn bílgeymslu neðanjarðar minnkar (flyst til yfir á lóð 1-2) og lóð 1-6 leysir bílastæði innan eigin lóðar. Byggingarmagn neðanjarðar eykst. Heildarbyggingarmagn lóðar minnkar. Fjórar innkeyrslur í bílgeymslu í stað þriggja. Ofanvatnslausnir og svæði með gegndræpu yfirborði breytist í samræmi við breytingu á húshlutum, samkvæmt deiliskipulags- skýringaruppdr. Arkþing/Nordic ehf. ódags. Einnig eru lagt fram bréf hönnuðar dags. 7. júlí 2022 og skilmálar fyrir húsbyggingar og mannvirki á lóð dags. 26. janúar 2018, síðast br. 5. apríl 2022.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1551/2021.