Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. september 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. september 2022 þar sem sótt er um leyfi til að hækka um eina hæð, byggja kvisti og innrétta fjórar íbúðir í húsi á lóð nr. 16 við Freyjugötu. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. september 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. október 2022.