Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. janúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja bílskúr þannig að austurvegg og þaki verður skipt út fyrir gler og til að síkka glugga og byggja stálsvalir með hringstiga ofaní garð á suðurhlið húss á lóð nr. 1 við Marargötu. Erindi var grenndarkynnt frá 9. febrúar 2022 til og með 9. mars 2022, en þar sem samþykki hagsmunaaðila barst 17. febrúar 2022 er erindi nú lagt fram að nýju.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. janúar 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. janúar 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 10. janúar 2022. Gjald kr. 12.100