Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. desember 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja safnaðarheimili á tveimur hæðum auk kjallara, helsta burðarvirki, þ.e. undirstöður, botnplata, milliplata og útveggir er staðsteypt, en í þaki er stálbiti og sperrur, í kjallara eru stoðrými, hol og undirgöng yfir í kirkju, á jarðhæð eru salerni, kaffitería og íbúð, á annarri hæð er salur og herbergi, mestur fjöldi í sal er 72 manns í húsi á lóð nr. 8 við Bakkastíg. Stækkun er: 347,5 ferm., 1.544,4 rúmm. Erindi fylgir greinargerð hljóðvistar dags. 2. desember 2021, afrit lóðaruppdrátt dags. 6. október 2021 og afrit hæðarblaðs ódagsett. Gjald kr.12.100