Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. desember 2021 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum framkvæmdum sem eru þær að gluggi á norðurhlið hefur verið síkkaður og sett hurð og garðveggur hefur verið tekinn að hluta til að koma fyrir bílastæði auk þess sem sótt er um að gera svalir/pall með tröppum niður í garð, á lóð nr. 36 a við Túngötu. Bréf hönnuðar dags. dags. 21. apríl 2021 fylgir. Gjald kr. 12.100