Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. janúar 2022 var lögð fram fyrirspurn Samúels Arons Guðlaugssonar dags. 17. janúar 2022 um að setja kvist á húsið á lóð nr. 134 við Laugaveg sem snýr í átt að götu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. mars 2022.