Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. febrúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að reisa tveggja hæða verslunar- og skrifstofuhúsnæði, staðsteypt að mestu, burðarvirki milligólfs og þaks verði stálvirki á lóð nr. 2 við Norðlingabraut. Stærð er: 3.043,3 ferm., 14.979,1 rúmm. Erindi fylgir greinargerð arkitekta, ódagsett og greinargerð brunahönnuðar dags. 21. desember 2021. Gjald kr. 12.100