Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. febrúar 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. febrúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í norðvestur horni lóðar, undirstöður og botnplata staðsteypt, útveggir og þak úr forsteyptum einingum, ný innkeyrsla og breyting á aðkomu framan við bílskúr við hús á lóð nr. 32 við Vesturgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2022.