Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. febrúar 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja bílskúr í norðvestur horni lóðar, undirstöður og botnplata staðsteypt, útveggir og þak úr forsteyptum einingum, ný innkeyrsla og breyting á aðkomu framan við bílskúr við hús á lóð nr. 32 við Vesturgötu. Stækkun: 37,4 ferm., 127,3 rúmm. Gjald kr.12.600