Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júní 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. maí 2022 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum með aukaíbúð og innbyggðum bílskúr á lóð nr. 46 við Gerðarbrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. júní 2022.