Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 1. apríl 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. mars 2022 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja svalir og stækka þær til suðurs úr stálgrind, klæddar álklæðningu með svalagólfi úr timbri í stað steyptra svala, á húsi á lóð nr. 10 við Seljugerði. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. apríl 2022.