Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. ágúst 2022 þar sem sótt er um leyfi til að stækka kvisti, koma fyrir nýjum svölum og breyta innra skipulagi íbúðar 0301 í húsi á lóð nr. 17 við Blönduhlíð. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2022. Stærð: xx,x ferm., xx,x rúmm. Erindi fylgir samþykki eiganda dags. 20. júlí 2022 og afrit af samþykktum aðaluppdráttum. Gjald kr.12.600
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Blönduhlíð 19. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1551/2021.