Lögð fram fyrirspurn Daða Hannessonar dags. 13. maí 2022 um hvort það samræmist deiliskipulagi Vogahverfis að gólfkóti bílskúrs á lóð nr. 25 við Karfavog verði 30,9 m. Einnig eru lagðar fram ljósmyndir ódags. þar sem hæðarmælingar koma fram, mæliblað fyrir lóðina dags. 9. maí 2022 og gildandi deiliskipulag frá 2010.