Lögð fram fyrirspurn NH eigna ehf. dags. 28. september 2022 ásamt greinargerð ALARK arkitekta f.h. NF eigna ehf. dags. 27. september 2022 um tvær hugsanlegar lausnir að nýtingu atvinnurýma á 1. hæð hússins á lóð nr. 2 við Arnarhlíð. Annars vegar gerð 10 íbúðareininga, þrjár sem snúa að Smyrilshlíð og sjö sem snúa að Arnarhlíð, ásamt hugsanlegri nýtingu húshorna fyrir aðra starfsemi t.d. verslun og kaffihús í bland við hótelstarfsemi. Hins vegar 100% nýtingu atvinnurýmis undir íbúðahótel þar sem gert væri ráð fyrir 17 íbúðareiningum í rýminu, samkvæmt uppdr. ALARK arkitekta ehf. dags. 27. september 2022.